Færsluflokkur: Menning og listir
14.8.2006 | 20:43
Plötusnúður á Sirkus
Á morgun er ég að spila á Sirkus (DJ Jonni eða eitthvað) í fyrsta skipti en hef þó oft rætt það upphátt og í þegjandi hljóði í gegnum árin að mig langði að prufa það. Ég hlakka til en veit ekki alveg hvað ég á að gera svona á þriðjudagskvöldi enda getur maður svo sem átt von á hverju sem er þarna hvað stemningu varðar. En ég er búinn að vera að hlusta á fullt af skemmtilegri tónlist í dag og skemmta mér vel við það ásamt þeim Blixu og Diktu (vel þá tónlist sem þær sveifla skottinu við sko - verð kannski bara DJ Kisi) og verð sennilega að því fram á rauða en segi samt bara fullur bjartsýni að það verður frábært að koma og fá sér ein eða tvo bjóra á Sirkus annað kvöld.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 23:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)


kamilla
juliara