Færsluflokkur: Íþróttir

Enginn Smári

Tilkynnt var í dag um að Eiður Smári myndi ekki leika með landsliðinu á
morgun gegn Spáni en þá etja liðin kappi á Laugardalsvelli þegar
völlurinn verður tekinn til notkunnar á ný og er hið besta mál. Ég ekki
sagt annað en að mér finnst þetta vera svindl að segja frá þessu svona
seint og fólk haft að fíflum því auðvitað langar fólki sem keypt höfðu
miða að sjá Gullsmárann spila gegn Spánverjum þar sem hann er ný
genginn til liðs við hið frábæra félag Barselóna. Auðvitað neitar
landsliðsþjálfarinn (fyrir hönd KSÍ) því að þessu hafi verið viljandi
haldið leyndu en mér finnst þetta vera eitthvað voða týpískt íslenskt
og að þetta hafi verið löngu ákveðið.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband